Privacy policy
Skilmálar
Vefverslunin Pílubox.is er rekin af M1A ehf.
Kt. 570224-2900
VSK-númer: 151856
Pílubox.is selur mystery box með pílusettum og aðrar pílutengdar vörur. Með kaupum á Píluboxi samþykkir kaupandi að um mystery box sé að ræða þar sem nákvæmt innihald er ekki valið af kaupanda, en kaupanda er tryggð vara í samræmi við vörulýsingu.
Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK).
Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, meðal annars vegna rangra verðupplýsinga, prentvillna eða kerfisvillu.
Pílubox.is áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Ef slíkt kemur upp verður haft samband við kaupanda og honum boðið að hætta við pöntun eða staðfesta kaup á réttu verði.
Afgreiðsla pantana
Allar pantanir eru að jafnaði afgreiddar innan 1–3 virkra daga eftir að greiðsla hefur borist, nema annað sé tekið fram á vörusíðu eða í kaupferli.
Pöntun er ekki afgreidd fyrr en staðfesting um greiðslu hefur borist.
Afhendingarleiðir
Pílubox.is sendir vörur gegn gjaldi með Íslandspósti.
Sendingarkostnaður kemur fram í kaupferli áður en pöntun er staðfest.
Greiðslumátar
Pílubox.is býður upp á greiðslu í gegnum örugga greiðslugátt frá Teya.
Kaupandi velur vöru á Pílubox.is, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og staðfestir pöntun. Í kjölfarið fær kaupandi kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli kaupanda og Pílubox.is.
Mystery box skilmálar
Pílubox er mystery box þar sem kaupandi fær pílusett valið af Pílubox.is. Innihald boxsins er því óvænt og kaupandi velur ekki nákvæmt pílusett, tegund, þyngd, grip eða hönnun, nema slíkt sé sérstaklega tekið fram á vörusíðu.
Ekki er hægt að skipta pílusettinu eða skila því eingöngu á þeim grundvelli að kaupandi hefði frekar viljað annað sett, aðra tegund, aðra þyngd, aðra hönnun eða annað innihald.
Ef kaupandi setur fram óskir, til dæmis um þyngd eða grip, reynum við eftir fremsta megni að taka tillit til þeirra, en slíkar óskir eru ekki trygging fyrir ákveðnu innihaldi nema það sé sérstaklega staðfest skriflega.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Skilafrestur er 14 dagar frá því að skráður viðtakandi fær vöruna afhenta.
Til að nýta skilarétt þarf kaupandi að tilkynna Pílubox.is um ákvörðun sína með skýrum hætti innan 14 daga frá afhendingu, til dæmis með því að senda tölvupóst á pilubox@pilubox.is.
Varan skal endursend án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að kaupandi tilkynnti um að hann vilji falla frá kaupunum.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema kaupandi hafi fengið ranga, gallaða eða skemmda vöru afhenta.
Varan þarf að berast okkur aftur ónotuð, óskemmd og í söluhæfu ástandi, ásamt öllum fylgihlutum og umbúðum eftir því sem við á. Ef varan, pílusettið, fylgihlutir eða umbúðir hafa verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika, einkenni og virkni vörunnar, áskiljum við okkur rétt til að taka tillit til rýrnunar á verðgildi við endurgreiðslu.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist okkur aftur eða þegar kaupandi hefur lagt fram staðfestingu á endursendingu, hvort sem gerist fyrr. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema sérstaklega sé samið um annað.
Fái kaupandi ranga, gallaða eða skemmda vöru skal senda póst á netfangið pilubox@pilubox.is með upplýsingum um pöntunina og myndum ef við á. Við metum málið og bjóðum viðeigandi úrlausn í samræmi við lög, svo sem úrbætur, nýja vöru eða endurgreiðslu eftir atvikum.
Að öðru leyti er vísað til laga nr. 16/2016 um neytendasamninga og laga nr. 48/2003 um neytendakaup.
Höfundaréttur
Texti, grafík, lógó, myndir og annað efni á www.pilubox.is er eign M1A ehf. eða notað með heimild rétthafa. Afritun og endurdreifing efnis er óheimil nema með skriflegu leyfi M1A ehf. eða viðkomandi rétthafa.
Persónuupplýsingar og trúnaður
Pílubox.is fer með persónuupplýsingar kaupanda sem trúnaðarmál og notar þær aðeins í þeim tilgangi að afgreiða pantanir, veita þjónustu, uppfylla lagaskyldur og reka vefverslunina.
Nauðsynlegar upplýsingar kunna að vera afhentar þjónustuaðilum sem koma að afgreiðslu pöntunar, svo sem greiðsluþjónustu, sendingar aðilum, vefverslunarkerfi og bókhaldsþjónustu.
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga koma fram í persónuverndarstefnu Pílubox.is.
Fyrirvari
Pílubox.is birtir upplýsingar á vefnum með fyrirvara um innsláttarvillur, myndabrengl, rangar verðupplýsingar, rangar birgðaupplýsingar eða aðrar villur.
Pílubox.is áskilur sér rétt til að leiðrétta slíkar villur, breyta verði og fella niður pöntun ef vara er ranglega skráð eða ekki til á lager.
Varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna viðskipta samkvæmt skilmálum þessum skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum, nema lög mæli fyrir um annað.
Hafa samband
Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið pilubox@pilubox.is ef einhverjar spurningar vakna.