Refund policy

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Skilafrestur er 14 dagar frá því að skráður viðtakandi fær vöruna afhenta.

Til að nýta skilarétt þarf kaupandi að tilkynna Pílubox.is um ákvörðun sína með skýrum hætti innan 14 daga frá afhendingu, til dæmis með því að senda tölvupóst á pilubox@pilubox.is.

Varan skal endursend án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að kaupandi tilkynnti um að hann vilji falla frá kaupunum.

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema kaupandi hafi fengið ranga, gallaða eða skemmda vöru afhenta.

Varan þarf að berast okkur aftur ónotuð, óskemmd og í söluhæfu ástandi, ásamt öllum fylgihlutum og umbúðum eftir því sem við á. Ef varan, pílusettið, fylgihlutir eða umbúðir hafa verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eiginleika, einkenni og virkni vörunnar, áskiljum við okkur rétt til að taka tillit til rýrnunar á verðgildi við endurgreiðslu.

Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist okkur aftur eða þegar kaupandi hefur lagt fram staðfestingu á endursendingu, hvort sem gerist fyrr. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema sérstaklega sé samið um annað.

Fái kaupandi ranga, gallaða eða skemmda vöru skal senda póst á netfangið pilubox@pilubox.is með upplýsingum um pöntunina og myndum ef við á. Við metum málið og bjóðum viðeigandi úrlausn í samræmi við lög, svo sem úrbætur, nýja vöru eða endurgreiðslu eftir atvikum.

Að öðru leyti er vísað til laga nr. 16/2016 um neytendasamninga og laga nr. 48/2003 um neytendakaup.